Kristinn Steindórsson hefur tilkynnt að hann yfirgefi Breiðablik þegar samningur hans við uppeldisfélagið rennur út eftir tímabil.
Kristinn, sem er 36 ára, sneri aftur til Breiðabliks árið 2020 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2022 og 2024, auk þess sem hann varð bikarmeistari í sumar.
Fyrr á ferlinum vann Kristinn bikarinn 2009 og varð Íslandsmeistari ári síðar. Hélt hann í atvinumennsku árið 2012 og lék í Svíþjóð og Bandaríkjunum í fimm ár. Stoppaði Kristinn svo í FH í tvö ár áður en hann sneri aftur í Kópavoginn.
„Kæru Blikar. Það er orðið ljóst að þetta tímabil er mitt síðasta sem leikmaður Breiðabliks. Það eru margar tilfinningar sem brjótast fram en fyrst og fremst stolt. Ég er stoltur af mínum tíma hjá félaginu, stoltur að hafa borið kyndilinn á brjóstinu öll þessi ár og ég er gífurlega stoltur af árangrinum sem náðst hefur.
Við höfum skrifað sögu félagsins og sögu íslenskrar knattspyrnu og gert það á okkar forsendum. Ég hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu. Vonandi næ ég að kveðja sem flest ykkar á þeim tíma sem eftir lifir tímabils. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir mig,“ segir Kristinn í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.