Guðmundur Kristjánsson leggur skóna á hilluna eftir tímabilið með Stjörnunni. Hann greinir frá þessu á samfélagsmiðlum.
Guðmundur, sem er 37 ára, hefur átt frábæran frábæran feril. Varð hann Íslandsmeistari með Breiðabliki ungur að árum áður en hann fór til Start í Noregi og lék þar við góðan orðstýr í fimm ár.
Við tók dvöl hjá FH og Stjörnunni síðustu ár, auk þess sem Guðmundur á að baki sjö A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
„Takk fyrir mig. Þetta tímabil verður mitt síðasta sem leikmaður. Ég er stoltur að hafa getað spilað leikinn sem ég elska svona lengi. Takk fyrir allir liðsfélagar, þjálfarar og fólk sem ég hef unnið með í gegnum árin.
Ég er þakklátur fyrir allt fólkið sem ég hef kynnst, staðina sem ég hef heimsótt og minningar sem ég hef eignast. Mest er ég þó þakklátur fjölskyldunni minni fyrir að hafa staðið með mér í þessu,“ skrifar Guðmundur.