Arsenal og Aston Villa hafa bæði áhuga á Endrick, sóknarmanni Real Madrid, ef marka má spænska miðla.
Endrick, sem er tvítugur, er ekki í stóru hlutverki undir stjórn Jose Mourinho í spænsku höfuðborginni. Var hann lánaður til Lyon á seinni hluta síðustu leiktíðar og gekk það vel.
Ekki kemur fram hvort Arsenal og Villa vilji fá hann á láni eða endanlega, en leikmaðurinn vill fá stærra hlutverk en honum er boðið upp á hjá Real Madrid núna.
Bæði Arsenal og Villa gætu boðið Brasilíumanninn upp á að spila í Meistaradeildinni á þessu tímabili.