Wilfried Zaha gæti verið á leið til Lazio en ítalska félagið fylgist með stöðu hans eftir að hann varð samningslaus í sumar. Albert Guðmundsson gekk í raðir Lazio í sumar.
Hinn 33 ára Zaha yfirgaf Galatasaray í júní eftir lánsdvöl hjá Charlotte FC og hefur ekki verið með félag síðan.
Samkvæmt miðlinum 225foot er Lazio að skoða möguleikann á að semja við kantmanninn strax. Félagið á enn tvö laus pláss í leikmannahópi sínum í Serie A.
Al-Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er einnig sagt fylgjast með Zaha, en ekkert formlegt tilboð hefur enn borist.
Lazio gæti viljað klára málið fljótt þar sem félagið á á hættu frekara félagaskiptabann í janúar vegna meintra fjárhagslegra brota.
Zaha er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Crystal Palace, þar sem hann skoraði 90 mörk í 458 leikjum. Hann lék einnig fjóra leiki fyrir Manchester United eftir að hafa gengið til liðs við félagið árið 2013.