433

Afar vandræðalegt myndband á miklu flugi á netinu - Minnir á þegar upp komst um framhjáhald á tónleikum Coldplay

Mynd

Ungt par í stúkunni stal óvænt senunni í kveðjuleik Lionel Messi með argentíska landsliðinu í gær.

Í sjónvarpsútsendingu frá leiknum má sjá mann taka utan um konu við hlið sér. Hún brosti til að byrja með en kom sér svo undan.

Myndband af þessu fór hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum og margir höfðu samúð með manninum. Aðrir líktu þessu við frægt atvik frá Coldplay-tónleikum í fyrra, þar sem upp komst um framhjáhald.

Argentína vann leikinn 3-0 og Messi kvaddi með stæl. Hann skoraði eitt og lagði upp tvö fyrir framan 85 þúsund áhorfendur í Buenos Aires.

Myndbandið af parinu er hér að neðan.