AC Milan ætlar að reyna að fá Joshua Zirkzee frá Manchester United í janúar. Ítalski miðillinn Calciomercato greinir frá þessu.
Þessi 25 ára gamli Hollendingur hefur lítið fengið að spila undir stjórn Michael Carrick á tímabilinu og hefur ekki enn byrjað leik. Milan vill fá hann á láni með kaupmöguleika.
Zirkzee þekkir vel til á Ítalíu eftir góðan tíma hjá Bologna áður en hann gekk til liðs við United. Milan var raunar nálægt því að kaupa hann áður en hann fór á Old Trafford.
Zirkzee minnti á sig með hollenska landsliðinu í landsleikjaglugganum og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri gegn Serbíu. Hann gæti þó þurft að leita annað í janúar til að fá meiri spiltíma.