Íslenska karlalandsliðið kláraði í gær fjögurra leikja glugga en kvennalandsliðið tekur strax við í þessari viku.
Stelpurnar okkar spila afar mikilvæga leiki við Króatíu sitt hvoru megin við helgina í umspili um sæti á HM.
Liðið er nú komið saman í Króatíu, en fyrri leikur liðanna er á föstudag þar ytra. Liðin mætast svo hér heima næstkomandi þriðjudagskvöld.
Um undanúrslit í umspilinu er að ræða, en sigri Ísland Króatíu mætir liðið Portúgal eða Norður-Írlandi í hreinu úrslitaeinvígi, tveggja leikja, um sæti á HM næsta sumar.
Ísland hefur farið á fimm Evrópumót í röð en aldrei á HM. Mótið verður haldið í Brasilíu næsta sumar.