433

Ronaldo rýfur þögnina - Segist hafa verið svikinn tvisvar og ætlar ekki að hætta með landsliðinu

Mynd
Getty Images

Cristiano Ronaldo hefur staðfest að hann sé ekki hættur með portúgalska landsliðinu þrátt fyrir dramatíska brottför sína úr hópnum á dögunum. Hann segir Jorge Jesus landsliðsþjálfara hafa svikið loforð við sig í tvígang.

Ronaldo segir að upphaflega hafi ekki staðið til að nota hann gegn Noregi en Jesus hafi síðan beðið hann um að spila í 30 mínútur. Ronaldo hitaði upp stóran hluta seinni hálfleiks en kom aldrei inn á.

„Þjálfarinn sveik loforð sitt við mig,“ sagði Ronaldo, sem yfirgaf leikvanginn án þess að yrða á stuðningsmenn.

Þeir funduðu tveimur dögum síðar og Ronaldo segir Jesus hafa lofað að útskýra málið opinberlega og viðurkenna sín mistök. Jesus hafi hins vegar tekið allt annan pól í hæðina á blaðamannafundi daginn eftir. „Þetta var í annað sinn sem hann sveik loforð sitt við mig.“

Ronaldo biðst afsökunar á að hafa yfirgefið landsliðshópinn og segist tilbúinn að taka þeirri refsingu sem portúgalska knattspyrnusambandið ákveður.

Hinn 41 árs gamli Ronaldo ætlar hins vegar áfram að gefa kost á sér eftir að hafa tekið út hugsanlega refsingu.

Hér að neðan er yfirlýsingin í heild.