433

Norðmenn leggja inn kvörtun

Mynd
Getty Images

Norska knattspyrnusambandið hefur lagt fram formlegar kvartanir til tveggja nefnda FIFA vegna stjórnarhátta sambandsins og ákvarðana Gianni Infantino forseta.

Norðmenn vilja meðal annars að siðanefnd FIFA rannsaki hvort Infantino eða aðrir innan sambandsins hafi brotið siðareglur FIFA. Þá vilja þeir að stjórnarhættir, fjármálaeftirlit og ákvarðanataka sambandsins verði tekin til skoðunar.

Kvartanirnar snúa að þremur umdeildum málum. Friðarverðlaunum FIFA sem voru afhent Donald Trump, ákvörðun um að aflétta leikbanni Bandaríkjamannsins Folarin Balogun á HM eftir afskipti Trump Bandaríkjaforseta og áformum FIFA um að leyfa einkafjárfestum að eignast hlut í keppnum FIFA. Reyndar hefur verið hætt við þau áform í bili eftir að þau mættu mikilli andstöðu.

Norska sambandið hefur lengi gagnrýnt skort á gagnsæi og aðgreiningu valds innan FIFA en hafa ekki sett fram svona formlegar kvartanir áður.