433

Lögreglan grípur til aðgerða

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Images

Ítalska lögreglan hefur gripið til aðgerða gegn 42 stuðningsmönnum Juventus og Torino vegna mikilla óeirða fyrir nágrannaslag liðanna í maí.

Harðkjarna stuðningsmenn liðanna tókust á fyrir utan Olimpico Grande Torino og köstuðu meðal annars flöskum, grjóti og sprengiefnum. 

Níu lögreglumenn særðust og 36 ára gamall stuðningsmaður Juventus hlaut alvarlega höfuðáverka eftir að táragashylki hæfði hann.

Liðin, sem bæði eru staðsett í Tórínó í norðurhluta Ítalíu, gerðu 2-2 jafntefli í umræddum leik en þau mætast næst á heimavelli Juventus 6. janúar.