Íslenska karlalandsliðið gerði markalaust jafntefli við Eistland í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Uppstillingin á varnarlínunni vakti athygli.
Guðlaugur Victor Pálsson og Daníel Leó Grétarsson voru bakverðir í leiknum en Stefán Teitur Þórðarson og Hörður Björgvin Magnússon í miðverði. Guðlaugur var látinn taka mikinn þátt í sóknarleiknum.
„Ég skil ekki hvernig við getum réttlætt það að setja Guðlaug Victor í þessa stöðu sóknarlega. Þetta er ekki góð staða fyrir hann og við erum ekki að gera honum neinn greiða,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, fótboltaþjálfari og sparkspekingur, á Sýn Sport eftir leik.
Kári Árnason, sem var hluti af landsliðinu sem fór í lokakeppni EM og HM, var með honum í setti og tók undir.
Kári sagði jafnframt að íslenska liðið hafi ráðið illa við þétt og skipulagt eistneskt lið varnarlega og að hann hafi ekki haft mikla trú á að við gætum skorað eins og leikurinn spilaðist.
Menn voru þó á því að taka mætti eitt og annað jákvætt úr landsleikjaglugganum sem nú er að ljúka. Ísland gerði tvö jafntefli við Eistland en vann Búlgaríu og Lúxemborg, auk þess að halda hreinu í þremur leikjum.
Strákarnir okkar eru á toppi riðilsins í C-deildinni fyrir síðustu tvo leikina í nóvember.