Bayern Munchen fylgist vel með Tarik Muharemovic, varnarmanni Leeds, eftir frábæra byrjun hans á Englandi.
Þessi 23 ára gamli Bosníumaður gekk til liðs við Leeds frá Sassuolo í sumar fyrir rúmar 30 milljónir punda og hefur strax fest sig í sessi sem lykilmaður. Leeds metur hann nú á meira en 60 milljónir punda.
Talið er að Bayern sé með Muharemovic á blaði fyrir næsta sumar en félagið gæti jafnvel prófað að gera tilboð strax í janúar. Það þykir þó afar ólíklegt að Leeds sleppi honum á miðju tímabili, enda gerði hann fimm ára samning í sumar.
Ítalska stórliðið Inter var á eftir Muharemovic og gæti reynt aftur næsta sumar.