433

Athæfi David Beckham á samfélagsmiðlum vekur gríðarlega athygli - Hvað er hægt að lesa úr því?

Mynd

Knattspyrnugoðsögnin David Beckham virðist reyna að rétta syni sínum Brooklyn sáttarhönd eftir langvarandi deilur innan Beckham-fjölskyldunnar.

Það vakti athygli þegar David setti like við myndband af Brooklyn og eiginkonu hans Nicola Peltz á tískuvikunni í París á dögunum. 

Brooklyn hefur í raun ekki átt nein samskipti við foreldra sína, David og Victoriu, að undanförnu og sakaði þá í janúar um að hafa reynt að stjórna sér og eyðileggja samband sitt við Nicolu.

Brooklyn hefur sjálfur sagt opinberlega að hann hafi engan áhuga á að sættast við foreldra sína. Áhugi á sáttum virðist eingöngu vera þeirra megin, en David og Victoria óskuðu syninum til hamingju með afmælið fyrr á árinu.

Það er því alls ekki víst að það dugi fyrir David að setja like á mynd sonarsins en það ýtir þó allavega undir þá kenningu að foreldrarnir vilji sættast við Brooklyn.

Mynd