Arsenal og Liverpool fylgjast vel með Josh King, 19 ára gömlum miðjumanni Fulham, eftir frábæra byrjun hans á tímabilinu.
King hefur byrjað alla fimm leiki Fulham í ensku úrvalsdeildinni og skorað tvö mörk. Hann spilaði 32 deildarleiki á síðustu leiktíð og hefur einnig æft með A-landsliði Englands.
Fulham er sagt verðmeta King á um 51 milljón punda en hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2029. Félagið er því í fremur sterkri samningsstöðu.
Þýska stórliðið Dortmund fylgist einnig með gangi mála hjá King.