433

Arnar lét leikmenn Íslands heyra það í hálfleik

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var sáttur við stigið eftir markalaust jafntefli við Eistland í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.

Þetta var annað jafnteflið við Eista á nokkrum dögum, en í millitíðinni vann íslenska liðið Búlgaríu og Lúxemborg.

„Mér finnst þetta frábært stig, ég var að fíla Eistana og við vorum í stökustu vandræðum í fyrri hálfleik. Þeir náðu hvað eftir annað að snúa okkur og finna mann milli línanna.

Seinni hálfleikur var betri en við náðum ekki að fá næg færi og þeir voru þéttir, auk þess sem þeir voru skeinuhættir í skyndisóknum. Ég ætla að fagna þessu stigi,“ sagði Arnar við Sýn Sport eftir leik.

Hann lét leikmenn heyra það eftir fyrri hálfleikinn.

„Stundum vill maður ekki gera það. En ég vildi ekki að við myndum leyfa augnablikinu að fara frá okkur og allt í einu væri fínasti gluggi ekki nógu góður.“