Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir að það verði að taka margt inn í myndina þegar rætt er um nýtt fyrirkomulag á Bestu deildinni.
Mikið hefur verið rætt og ritað undanfarna daga um fyrirkomulagið á Bestu deildum karla- og kvenna. Hafa KSÍ og ÍTF nú sett saman spretthópa sem fara yfir málið. Ku það vera möguleiki að fjölga liðum karla megin upp í 14 karlamegin og 12 kvennamegin.
Undanfarin ár hefur 12 liða Bestu deild karla verið skipt upp í tvennt eftir hefðbundið 22 leikja mót, efri og neðri hluta. Margir eru á því að fyrirkomulagið hafi ekki heppnast nógu vel og að það vanti fleiri spennandi leiki.
Í áhugaverðum pistli sínum á Facebook segir Sævar að mikilvægt sé að horfa til þess að hugmyndin með tvískiptingunni væri að fjölga leikjum til að styrkja íslensku deildina og leikmenn gagnvart erlendum deildum.
Þetta hafi þá komið í veg fyrir að tímabilið á Íslandi spannaði minna en hálft árið og fækkað æfingaleikjum og mótum sem fáir hafa áhuga á að taka þátt í. Þess vegna er hann jafnframt hissa á að sjá þjálfara og leikmenn kvarta yfir því að mótið dragist út október.
„Til þess að koma slíku tímabili fyrir þá þarf að skoða alþjóða tíma rammann en ef FIFA/EUFA calander er skoðaður þá kemur í ljós að landsleikjagluggi er í lok mars ár hvert og svo nú í dag þá er orðinn þessi langi gluggi í lok sep byrjun okt. Þannig að byrja Íslandsmótið eitthvað fyrr heldur en hefur verið gert undanfarin ár er í raun og veru ekki raunhæft þar sem landsleikjagluggi er í lok mars.
Svo til að skoða aðra staðreynd þá er veður okkur íslendingum huglægt og eru til gríðarleg tölfræði gögn á veðurstofu Íslands. Þar má sjá meðalhita í Reykjavík en til að stytta mönnum leitina þá er meðalhiti í mars 0,5-1,0 á celsius en í okt þá er meðalhitinn um 5.0 á celsius og er október mánuður því mun betri til knattspyrnuiðkunar á Íslandi en nokkurn tíman Mars,“ skrifar Sævar meðal annars.
Frekar vill hann ráðast í það að skoða undirbúningstímabilið og hvort ekki megi lappa upp á það. Einnig bendir hann á að 14 liða deild myndi fjölga leikjum sem fjölmiðlar og þeir sem fjalla um deildina þyrftu að dekka.
„Hvort mótið er síðan spilað með 12 félögum í efstu deild eða 14 og 27 leikjum eða 26 leikjum er ekki stóra málið í mínum huga. Þó ber að hafa í huga að fara í 14 liða deild fjölgar leikjum um ca 20 ef ég er að telja þetta rétt og mun í raun og vera valda minni athygli eða umfjöllun á suma leiki sem verður ekki gott. Mun rétthafinn að útsendingum eða fjölmiðlar almennt hafa mikinn áhuga á því að fjölga leikjum þar sem eru meiri líkur en minni að það verði minna undir. Kallar þetta á fleiri leiki með single cameru í útsendingu, hugsanlega leikir sem verða ekki með textalýsingu frá helstu miðlunum og minni umfjöllun er ekki endilega það sem Besta deildin þarf á að halda að mínu mati, en skil vel rökin með að keppa hefðbundið mót þar sem allir spila heima og heiman við öll önnur félög. Einnig þarf í þessu samhengi að hugsa út í það hvaða afleiðingar þetta hefur á deildirnar fyrir neðan, mig grunar að öll umfjöllun þar verði minni og verra í því samhengi og það þarf að taka með inn í myndina í þessari umræðu.“
Pistill Sævars í heild
Mín 50 cent um Bestu deildina og uppsetninguna á mótinu þar.
Mikið hefur verið rætt um Íslandsmótið í knattspyrnu síðustu daga og mér finnst margt vera sagt út frá stöðunni í ár en ekki endilega út frá staðreyndum eða tölfræðigögnum sem er oftast best að líta til þegar menn fara fram með slík mál.
Þegar farið var af stað með að breyta Íslandsmótinu á sínum tíma þá var lykilmálið að fjölga leikjum og lengja keppnistímabilið á Íslandi, því almannaárið var eiginlega þannig að keppnistímabílið var 5 til 51/2 mán en undirbúningstímabilið var hátt í 6 mánuðir. Þetta kallaði á mun fleiri mis skemmtilega æfingaleiki í nóv og des sem mjög fáir höfðu áhuga á að fylgjast með eða taka þátt í yfir höfuð.
Helsta markmiðið var að ná því að fjölgja leikjum til að styrkja íslensk félagslið í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir og svo að lengja keppnistímabilið í 6-7 mánuði og stytta þannig undirbúningstímabil á sama tíma.
Til þess að koma slíku tímabili fyrir þá þarf að skoða alþjóða tíma rammann en ef FIFA/EUFA calander er skoðaður þá kemur í ljós að landsleikjagluggi er í lok mars ár hvert og svo nú í dag þá er orðinn þessi langi gluggi í lok sep byrjun okt. Þannig að byrja Íslandsmótið eitthvað fyrr heldur en hefur verið gert undanfarin ár er í raun og veru ekki raunhæft þar sem landsleikjagluggi er í lok mars (sjá https://inside.fifa.com/tou.../international-match-calendars).
Svo til að skoða aðra staðreynd þá er veður okkur íslendingum huglægt og eru til gríðarleg tölfræði gögn á veðurstofu Íslands. Þar má sjá meðalhita í Reykjavík en til að stytta mönnum leitina þá er meðalhiti í mars 0,5-1,0 á celsius en í okt þá er meðalhitinn um 5.0 á celsius og er Október mánuður því mun betri til knattspyrnuiðkunar á Íslandi en nokkurn tíman Mars.
Þá er næsta umræða um það að spila bara þéttar yfir sumarið, ef samantekt mín klikkar ekki þá sýnist mér að Víkingur hafi spilað 24 leiki á 99 dögum i sumar á milli landsleikjaglugga í júní og svo aftur í sept. Þetta gerir leik á ca 4.15 daga fresti yfir þetta tímabil og er það hlutur sem verður að taka tillit til þegar kemur að mótinu, þ.e.a.s hvað bestu liðin eru að glíma við og þarf uppröðunin á Íslandsmótinu að taka það inn í myndina.
Svo þegar sumir þjálfarar og leikmenn tala núna um að það sé galið að vera að keppa einhverja tilgangslausa leiki út okt þá held ég að enginn þeirra hafi áhuga á því að skipta þeim leikjum út fyrir leiki í Bose-mótinu eða einhverju slíku æfingamóti í nóv í skítaveðri fyrir framan ca 12 áhorfendur. Enginn þjálfari eða leikmaður vil heldur fara á styttri samning en 12 mánuði og því skrýtið að heyra menn tala um hvað þetta sé erfitt að taka þátt í okt en eru samt á launum í 12 mánuði á ári.
Lykilatriði í íslenskum fótbolta núna er miklu frekar að finna út úr því hvað er gert við undirbúningstímabilið og hvernig móthald er þar því Lengjubikarinn og þau vetrarmót sem hafa verið eru orðin úrelt og eru engum til sóma.
Hvort mótið er síðan spilað með 12 félögum í efstu deild eða 14 og 27 leikjum eða 26 leikjum er ekki stóra málið í mínum huga. Þó ber að hafa í huga að fara í 14 liða deild fjölgar leikjum um ca 20 ef ég er að telja þetta rétt og mun í raun og vera valda minni athygli eða umfjöllun á suma leiki sem verður ekki gott. Mun rétthafinn að útsendingum eða fjölmiðlar almennt hafa mikinn áhuga á því að fjölga leikjum þar sem eru meiri líkur en minni að það verði minna undir. Kallar þetta á fleiri leiki með single cameru í útsendingu, hugsanlega leikir sem verða ekki með textalýsingu frá helstu miðlunum og minni umfjöllun er ekki endilega það sem Besta deildin þarf á að halda að mínu mati, en skil vel rökin með að keppa hefðbundið mót þar sem allir spila heima og heiman við öll önnur félög. Einnig þarf í þessu samhengi að hugsa út í það hvaða afleiðingar þetta hefur á deildirnar fyrir neðan, mig grunar að öll umfjöllun þar verði minni og verra í því samhengi og það þarf að taka með inn í myndina í þessari umræðu.
En málið er mun flóknara en að byrja bara aðeins fyrr, eða fjölga leikjum yfir sumarið. Held líka ef þú raunverulega spyrð leikmenn þá sé ekki mikill áhugi hjá þeim að fara aftur til fyrri tíma þar sem tímabilið klárast í lok sept og þeir mæti til æfinga aftur í byrjun nóv og fara að æfa og spila úti við alls konar aðstæður í nóv/des í stað þess að klára keppnistímabilið í lok okt og fá frí í nóv.
Þannig að ákvörðun um stórar breytingar eins og núna er verið að ræða þarf að skoða út frá mörgum sjónarhornum og er mun flóknara en virðist við fyrstu sýn.