Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði var að vonum ánægður með eigin frammistöðu, sem og frammistöðu Íslands, í 3-0 sigri á Búlgaríu í kvöld.
Orri skoraði tvö og lagði upp annað í leiknum. Ísland hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir svekkjandi jafntefli við Eistland í fyrsta leik.
„Það er gaman að geta hjálpað liðinu. Mér líður vel með landsliðinu, finn fyrir miklu trausti og finnst vera stólað á mig. Ég þakka bara traustið,“ sagði Orri við 433.is eftir leik.
Framherjinn hefði getað fullkomnað þrennuna en klikkaði á víti. Hann ræddi mikið við Gylfa Þór Sigurðsson, sem hefur skorað úr ófáum vítum á ferlinum, áður en spyrnan var tekin.
„Ekki lengur en ég var pirraður eftir að ég klúðraði vítinu. Þetta var sennilega mitt síðasta víti á ferlinum,“ sagði Orri og hló.
„Við vorum bara að ræða hver ætti að taka það. Ég vildi ekki taka það af honum en hann vildi gefa mér tækifæri til að ná þrennunni. Ég ber gríðarlega virðingu fyrir Gylfa og hann er besti spyrnumaður í sögu Íslands. Það var ekki sjálfsagður hlutur að taka vítið af honum en ég fékk að taka það.“
Ítarlegra viðtal við Orra er í spilaranum.