„Þetta var geggjað, að halda hreinu í síðustu tveimur leikjum og taka sex stig,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson við 433.is eftir 3-0 sigur Íslands á Búlgaríu í dag.
Gylfi, sem kom inn á sem varamaður, fékk högg undir lok leiks og Arnar Gunnlaugsson sagði á fréttamannafundi eftir leik að hann myndi fara í myndatöku. Gaf hann í skyn að hann gæti verið rifbeinsbrotinn.
Í viðtalinu, sem má sjá í heild í spilaranum, sagðist Gylfi þó nokkuð brattur og vonast til að ná næsta leik, sem er gegn Eistlandi ytra á þriðjudag.
Í stöðunni 2-0 fékk Ísland vítaspyrnu. Gylfi var kominn inn á en Orri Steinn Óskarsson, sem hafði skorað bæði mörkin, fór á punktinn. Vildi hann gefa fyrirliðanum tækifæri á að taka þrennuna?
„Já, að sjálfsögðu. Það er ekkert að hverjum degi sem þú færð tækifæri til að skora þrjú fyrir landið þitt,“ sagði Gylfi við því.
Það fór svo að Orri klikkaði á vítinu en hann bætti upp fyrir það með því að leggja þriðja mark Íslands frábærlega upp.
Ítarlegt viðtal er í spilaranum.