Aron Einar Gunnarsson var að vonum sáttur með 3-0 sigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðdaeildinni í kvöld.
„Þetta var solid frammistaða. Völlurinn var smá erfiður og smá vindur. En það er gott að ná tveimur sigrum í röð. Þetta var kannski aðeins of hægt, flautað mikið og skipt um bolta fjórum sinnum. Það komst kannski ekki nægilega gott flæði í þetta, sem er kannski eðlilegt í þriðja leiknum á viku,“ sagði Aron við 433.is eftir leik.
Aron lék fyrri hálfleikinn og voru það fyrstu mínútur hans í þessum landsleikjaglugga, sem nú telur þrjá leiki. Hann var til í að spila seinni hálfleikinn. „Mér leið vel, var bara skipt út af.“
Aron verður leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins ef hann kemur við sögu í seinni þremur leikjunum í C-deild Þjóðadeildarinnar.
„Ef það gerist þá gerist það. Auðvitað veit maður af því,“ sagði hann um það.
Ítarlegra viðtal við Aron er í spilaranum.