433

Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið - Kristall Máni dregur sig út vegna meiðsla

Mynd

Kristall Máni Ingason á við meiðsli að stríða og verður ekki með A landsliði karla í komandi leikjum við Búlgaríu og Eistland í Þjóðadeild UEFA.  

Daníel Tristan Guðjohnsen kemur í A hópinn í hans stað fyrir leikinn við Búlgaríu, en heldur síðan til Færeyja með U21 liðinu þar sem íslenska liðið mætir því færeyska á þriðjudag.  

Ekki hefur verið tekin ákvörðun að svo stöddu hvort annar leikmaður verði kallaður í leikmannahóp A liðsins fyrir lokaleikinn í glugganum, gegn Eistlandi á þriðjudag.