fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Þessir fjórir miðjumenn á lista United til að fylla skarð Casemiro

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur sett saman fjögurra manna lista yfir mögulega eftirmenn Casemiro, sem er á förum frá félaginu í lok tímabilsins. Brasilíski miðjumaðurinn, sem var einn af fyrstu stóru leikmannakaupum Erik ten Hag á Old Trafford, mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út.

Forráðamenn United hafa ákveðið að framlengja ekki samning Casemiro, sem er með um 350 þúsund pund í vikulaun. Félagið horfir nú til framtíðar og ætlar að styrkja stöðu varnarsinnaðs miðjumanns.

Samkvæmt enskum blöðum fylgist United grannt með þremur ungum enskum miðjumönnum, Elliot Anderson hjá Nottingham Forest, Adam Wharton hjá Crystal Palace og Alex Scott hjá Bournemouth. Þremenningarnir hafa vakið athygli stjórnenda United með sterkri frammistöðu á yfirstandandi tímabili.

Auk þess er Carlos Baleba, miðjumaður Brighton, áfram á ratsjá félagsins. Kamerúnski leikmaðurinn, sem er 22 ára gamall, var einnig til umræðu hjá United síðasta sumar. Hugsanleg kaup í janúarglugganum voru skoðuð, en talið er ólíklegt að af þeim verði vegna óvissu um stöðu knattspyrnustjóra hjá félaginu.

Manchester United stefnir því á umtalsverðar breytingar á miðjunni fyrir komandi tímabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað