fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Staðfestir að faðir sinn hafi fallið frá í vikunni

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 10:30

Dominik Szoboszlai og Ibrahima Konate. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ibrahima Konaté hefur staðfest andlát föður síns, Hamady, með áhrifamikilli færslu á samfélagsmiðlum.

Liverpool-leikmaðurinn, sem er 26 ára gamall, dró sig út úr Meistaradeildarleik liðsins gegn Marseille á þriðjudagskvöld vegna þess sem var lýst sem „fjölskyldumáli“.

Daginn eftir birti Konaté upplýsingar um útför föður síns á Instagram-síðu sinni. Þar skrifaði hann meðal annars: „Frá Honum komum við og til Hans snúum við aftur,“ og staðfesti jafnframt að útförin fari fram næsta föstudag.

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var spurður út í fjarveru Konaté fyrir leikinn gegn Marseille, sem Liverpool vann 3-0. „Fyrst og fremst er þetta mjög sorglegt fyrir hann og fjölskyldu hans,“ sagði Slot í samtali við TNT Sports.

Konaté fæddist í París og er næstyngstur átta systkina. Foreldrar hans fluttu til Frakklands frá Malí, en Konaté yfirgaf París aðeins 15 ára gamall til að ganga í unglingastarf Sochaux.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað