fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Guardiola segir morgunljóst hvert besta lið heims sé

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir Arsenal vera besta lið heims um þessar mundir og viðurkennir að það verði afar erfitt fyrir City að ná þeim í baráttunni um enska meistaratitilinn.

City hefur ekki unnið í síðustu fjórum leikjum í úrvalsdeildinni og tapaði um síðustu helgi 2-0 gegn Manchester United í nágrannaslag. Þar að auki tapaði liðið óvænt gegn Bodo/Glimt í Meistaradeildinni í miðri viku og hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum.

Arsenal er hins vegar í frábæru formi, ósigraðir í 12 leikjum í öllum keppnum og eru með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar.

„Þeir eru besta lið heims núna. Í deildinni, Meistaradeildinni og bikarkeppnum, þeir eru einfaldlega bestir,“ segir Guardiola.

Þrátt fyrir erfiðleikana segist Guardiola enn treysta sínum leikmannahópi fullkomlega og vonast til að City geti sett pressu á Arsenal í toppbaráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað