fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Arsenal virkjar samtalið – Starfsmaður félagsins hefur áður fengið hann

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur hafið óformlegar viðræður um möguleg kaup á argentínska framherjanum Julian Alvarez frá Atlético Madrid í sumar, samkvæmt ESPN.

Skytturnar skoða það alvarlega að styrkja sóknarleikinn enn frekar í sumar, þó Viktor Gyokeres hafi verið keyptur dýrt í fyrra, en Svíinn hefur ekki staðið undir væntingum.

Andrea Berta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal sem gekk til liðs við félagið í fyrra eftir langan feril hjá Atletico, er sagður lykilmaður í málinu. Hann stóð sjálfur að kaupum Atletico á Alvarez frá Manchester City sumarið 2024 og á í góðu sambandi við umboðsmann leikmannsins.

Talið er að það myndi kosta Arsenal nálægt 100 milljónum punda að fá þennan 26 ára gamla heimsmeistara, en hann hefur skorað 40 mörk í 85 leikjum fyrir Atletico.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað