fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Afar óvænt deild gæti fengið aukasæti í Meistaradeildinni

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 08:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólska deildin gæti tryggt sér auka sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Tvö lið fá sérstök sæti fyrir árangur í Evrópukeppnum út frá „co-efficient“ stöðu þjóðanna. Núverandi staða sýnir að England og Pólland sitja í efstu tveimur sætum listans.

Þetta þýðir að Pólland gæti tryggt sér aukasæti með góðum árangri í Sambandsdeildinni, hvar þrjú lið frá landinu eru enn með.

Rakow, sem endaði í 2. sæti í deildarkeppninni, Lech Poznan og Jagiellonia Bialystok eru með en Legia Warsaw er úr leik.

Það gæti þó reynst erfitt fyrir pólsku deildina að halda í 2. sætið þar sem þjóðir eins og Þýskaland og Spánn eiga fleiri lið eftir í Meistaradeild og Evrópudeild.

Þess má geta að sem stendur fara tvö pólsk lið í undankeppni Meistaradeildarinnar og tvö í Sambansdeildinni. Öll fjögur liðin enduðu í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar á þessari leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað