fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

United sendir fyrirspurn til Barcelona – Gætu fengið samkeppni frá botnliðinu

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur sent fyrirspurn til Barcelona vegna miðjumannsins Marc Casado, ef marka má spænska miðilinn Mundo Deportivo.

Casado er 22 ára varnarsinnaður miðjumaður sem kom úr La Masia-akademíu Barcelona. Auk United hefur botnlið Wolves í ensku úrvalsdeildinni einnig sett hann á sinn óskalista fyrir sumargluggann ef marka má þessar fréttir.

Áhugi United er hluti af endurnýjun á miðjunni sem fyrirhuguð er sumarið 2026. Félagið er einnig orðað við leikmenn á borð við Adam Wharton, Carlos Baleba, Elliot Anderson og Joao Gomes.

Komi Casado á Old Trafford er því mun líklegra að það yrði í sumar en nú í janúarglugganum.

Cadado hefur spilað 19 leiki fyrir Börsunga í öllum keppnum það sem af er þessari leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað