fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Stóri Ange landaði nýju starfi

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ange Postecoglou er kominn aftur til starfa í fótboltanum, þremur mánuðum eftir að hann var rekinn frá Nottingham Forest eftir afar stutta og misheppnaða dvöl.

Ástralinn var aðeins 39 daga í starfi hjá Forest og tapaði öllum átta leikjum sínum við stjórnvölinn áður en honum var vikið úr starfi í kjölfar 3-0 taps gegn Chelsea.

Þar áður hafði hann einnig verið rekinn frá Tottenham, aðeins mánuði eftir að hafa tryggt félaginu Evrópudeildartitilinn, fyrsta bikar liðsins í 17 ár, með 1-0 sigri á Manchester United í úrslitaleiknum.

Eftir brottförina frá Forest var Postecoglou orðaður við endurkomu til Celtic, þar sem hann vann fimm titla á tveimur árum, þar á meðal þrennuna. Hann ákvað þó að taka sér hlé frá knattspyrnunni.

Nú hefur hann snúið aftur í lágstemmdara hlutverki sem meðlimur í tækniráði UEFA, þar sem fyrrverandi leikmenn og þjálfarar greina taktík og leikskipulag.

Postecoglou var á meðal þeirra sem greindu 3-1 sigur Arsenal á Inter í Meistaradeildinni og hrósaði þar sérstaklega Gabriel Jesus, sem skoraði tvö mörk í leiknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað