fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Van Nistelrooy ráðinn inn sem aðstoðarþjálfari hollenska landsliðsins

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 16. janúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruud van Nistelrooy hefur gengið til liðs við þjálfarateymi hollenska landsliðsins í aðdraganda Heimsmeistaramótsins, þar sem hann mun gegna starfi aðstoðarþjálfara undir stjórn Ronalds Koeman.

Van Nistelrooy, sem er 49 ára gamall, er einn markahæsti leikmaður í sögu hollenska landsliðsins en hann skoraði 35 mörk í 70 landsleikjum á ferlinum.

Hann hefur hins vegar verið án starfs síðan hann var rekinn frá Leicester City í lok síðasta tímabils, eftir stutt og erfiðan tíma hjá félaginu.

Ráðning hans í þjálfarateymi landsliðsins markar endurkomu hans í fótboltann á hæsta stigi og er talið að reynsla hans sem fyrrum heimsklassasóknarmaður muni nýtast hollenska liðinu vel. Van Nistelrooy hefur áður starfað sem þjálfari hjá PSV Eindhoven og einnig sinnt störfum innan yngri flokka.

Athyglisvert er að van Nistelrooy var einn af þremur þjálfurum sem Manchester United ræddi við fyrr í vikunni, áður en Michael Carrick var staðfestur sem aðalþjálfari félagsins út tímabilið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin