fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Eyjólfur staðfestur sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðablik – Ísleifur í stórt starf

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 16. janúar 2026 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gert breytingar á á skipulagi og skipuriti deildarinnar. Markmið breytinganna er að einfalda og skýra skipulag, boðleiðir og stjórnun. Eyjólfur Héðinsson verður yfirmaður knattspyrnumála.

„Með þessum breytingum, sem samþykktar voru af stjórn í byrjun desember, verður lögð enn frekari áhersla á faglegt starf deildarinnar, allt frá yngstu flokkunum og upp í meistaraflokka félagsins, og skýra framtíðarsýn. Staða deildarstjóra meistaraflokka og barna- og unglingastarf sameinast í rekstrarstjóra knattspyrnudeildar og til verður ný staða yfirmanns knattspyrnumála,“ segir á vef Breiðabliks.

Eyjólfur Héðinsson, verður yfirmaður knattspyrnumála, og ber hann ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar, og leiðir fótboltalegar áherslur og stefnumörkun. Eyjólfur hefur starfað hjá Breiðablik frá árinu 2022 og var fyrstu árin í meistaraflokksteymi karlaliðsins. Hann tók síðan við stöðu deildarstjóra meistaraflokka árið 2024.

Ísleifur Gissurarson , verður rekstarstjóri knattspyrnudeildar, og ber ábyrgð á daglegum rekstri meistaraflokka og barna- og unglingastarfs og tengdum verkefnum. Ísleifur hefur starfað á skrifstofu Breiðabliks sem deildarstjóri barna- og unglingastarfs frá árinu 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin