fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Brooklyn Beckham þurfti að fylgja þessari reglu þegar hann bjó hjá foreldrum sínum – Er í stríði við þau í dag

433
Föstudaginn 16. janúar 2026 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brooklyn Beckham fékk enga fjárhagslega sérmeðferð á unglingsárum þrátt fyrir að vera sonur eins ríkasta pars heims, David og Victoriu Beckham.

Brooklyn, sem fæddist árið 1999, ólst upp í London, Madríd og Los Angeles á meðan faðir hans lék með Real Madrid og LA Galaxy. Þrátt fyrir forréttindin vildu foreldrar hans að hann yrði jarðbundinn og hann þurfti að vinna fyrir eigin peningum. Aðeins 15 ára gamall vann hann vaktir á kaffihúsi í vestur-London og þénaði 2,68 pund á tímann.

Í dag er Brooklyn 26 ára og hefur fjarlægst fjölskyldu sína í kjölfar ágreinings. Hann hefur rofið samskipti, blokkað fjölskyldumeðlimi á samfélagsmiðlum og sent lögfræðibréf þar sem hann fer fram á að fá frið, að sögn til að vernda andlega heilsu sína. Hann mætti hvorki í 50 ára afmæli föður síns né aðra stóra fjölskylduviðburði.

Brooklyn er giftur leikkonunni Nicola Peltz, sem er sögð mun ríkari en hann sjálfur. Samkvæmt Celebrity Net Worth eru eignir Brooklyn metnar á um 7,4 milljónir punda, aðallega vegna fyrirsætustarfa og vörumerkjasamninga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað