433

Frá Manchester United til Hollands

Mynd
Getty Images

Chido Obi er á leið frá Manchester United til Willem II í Hollandi á láni út tímabilið. 

United ku hafa mikla trú á þessum 18 ára gamla framherja og er hann lánaður með það fyrir augum að gefa honum spiltíma. Enginn kaupmöguleiki fylgir samningnum.

Obi gekk til liðs við United frá Arsenal árið 2024 og varð síðar yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni, 17 ára og 156 daga gamall.

Hann skoraði níu mörk í 18 leikjum fyrir U-21 árs lið United á síðasta tímabili.