Helstu miðlar segja að Joshua Zirkzee verði áfram hjá Manchester United.
Félagaskiptaglugginn er að loka nú klukkan 22 og Everton reyndi að fá hann fyrr í kvöld. Það hefur þó ekki borið árangur.
Zirkzee virðist ekki ætlað stórt hlutverk á Old Trafford í vetur og fyrr í sumar var hann orðaður við ítölsk félög, enda vakti hann áður athygli með Bologna.
Hollenski sóknarmaðurinn verður þó áfram hjá United þar til í janúar hið minnsta.