433

Tengdadóttir hins þekkta glaumgosa glímir við alvarlegt krabbamein - Reynir að safna fyrir meðferð

Mynd

Jaimee Sharp, tengdadóttir fyrrum enska landsliðsmannsins Paul Gascoigne, hefur greint frá því að hún glími við ólæknandi heilaæxli.

Sharp er 28 ára og í sambandi með Mason, syni Gascoigne. Hún hefur stofnað söfnun til að fjármagna meðferð í Bandaríkjunum og segist þurfa að safna alls um 320 þúsund pundum til að eiga möguleika á að taka þátt í klínískri rannsókn í Ohio.

Mynd

Hún hefur þegar gengist undir stóra heilaaðgerð og er nú í geisla- og lyfjameðferð. Samkvæmt frásögn hennar er æxlið af alvarlegri gerð og óvíst hversu hratt sjúkdómurinn muni þróast.

Sharp á fimm ára gamlan son og segir helstu ástæðu sína fyrir söfnuninni vera þá að fá meiri tíma með honum.

Þegar fréttin birtist höfðu safnast meira en 146 þúsund pund, en enn vantaði verulega upp á markmiðið.

Fjölskyldan hefur þakkað fyrir stuðninginn og hvatt fólk sem getur til að leggja söfnuninni lið eða deila henni áfram.