433

Frá Monaco til Chelsea

Mynd
Lamine Camara Getty Images

Chelsea hefur náð samkomulagi við Monaco um kaup á Lamine Camara fyrir um 47 milljónir punda. 

Þessi 22 ára gamli miðjumaður á að fylla skarð Enzo Fernandez, sem Chelsea seldi til Manchester City á 125 milljónir punda í dag.

Camara hefur verið orðaður við Chelsea síðustu daga og um tíma var útlit fyrir að hann kæmi ekki, en það breyttist í dag.