433

Balogun féll á læknisskoðun

Mynd
Getty Images

Félagaskipti Folarin Balogun til Everton virðast vera farin út um þúfur eftir að framherjinn féll á læknisskoðun hjá félaginu.

Everton hafði náð samkomulagi við Monaco um kaup á hinum 25 ára gamla bandaríska landsliðsmanni fyrir um 40 milljónir punda. Nú er hins vegar útlit fyrir að ekkert verði af kaupunum.

Everton þarf því að leita annað í leit að styrkingu fram á við fyrir gluggalok nú klukkan 22, nema eitthvað breytist varðandi stöðuna á Balogun, sem skoraði þrjú mörk á HM í sumar.