433

Liverpool hafnar svakalegu tilboði í einn sinn efnilegasta mann

Mynd
Nyoni

Liverpool hefur hafnað 30 milljóna punda tilboði frá Nottingham Forest í hinn 19 ára gamla Trey Nyoni.

Samkvæmt Sky Sports bauð Forest 25 milljónir punda í föstu greiðsluna og aðrar fimm milljónir í mögulegar bónusgreiðslur.

Liverpool hefur hins vegar engan áhuga á að selja miðjumanninn og lítur á hann sem mikilvægan hluta af framtíð félagsins.

Nyoni er sagður eiga að fá stærra hlutverk í leikmannahópnum eftir brottför Curtis Jones og forráðamenn Liverpool telja hann vera tilbúinn að stíga upp.

Hinn ungi miðjumaður hefur vakið athygli innan félagsins og Liverpool vill halda fast í hann þrátt fyrir áhuga Forest.

Það virðist því ólíklegt að Forest nái að sannfæra Liverpool um sölu nema félagið breyti verulega um afstöðu áður en félagaskiptaglugginn lokar.