Everton hefur lagt fram tilboð í Folarin Balogun, framherja Monaco. BBC segir frá.
Monaco metur Balogun á um 40 milljónir punda og óvíst er hvort tilboð Everton dugi, en ekki kemur fram hversu hátt fyrsta boð er.
Þessi 25 ára gamli bandaríski landsliðsmaður er uppalinn hjá Arsenal en hefur leikið með Monaco frá 2023.
Balogun skoraði þrjú mörk á HM í sumar og varð miðpunktur fjaðrafoks þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti beitti sér fyrir því að leikbanni hans yrði aflétt í 16-liða úrslitum.