Arsenal vann Aston Villa á útivelli í hörkuleik sem rak endahnútinn á 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Meistararnir þurftu að hafa fyrir sigrinum, en það var mark Bukayo Saka eftir laglega sókn sem skildi liðin að í kvöld.
Arsenal er með fullt hús stiga og hefur ekki fengið á sig mark í fyrstu tveimur leikjunum. Villa er án stiga.