Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir tvö umferðarlagabrot.
Scholes var tekinn á 37 mílna hraða þar sem hámarkshraði var 30 mílur í Cleckheaton í mars. Þá var Mercedes-bifreið skráð á hann mæld á 49 mílna hraða á 30 mílna svæði í nóvember á síðasta ári.
Hann var einnig ákærður fyrir að svara ekki tveimur bréfum frá lögreglu þar sem óskað var eftir staðfestingu á því hver hefði ekið bílnum.
Scholes fékk sex mánaða akstursbann og var gert að greiða samtals 1.472 pund í sektir, kostnað og önnur gjöld.
Hinn 51 árs gamli Scholes vann meðal annars ellefu Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina tvisvar með Manchester United og lék 66 landsleiki fyrir England.