Pep Guardiola segir óvíst hvort hann snúi nokkurn tímann aftur í þjálfun eftir að hafa látið af störfum hjá Manchester City í vor.
Guardiola lauk tíu ára veru sinni hjá City í maí og ætlar sér að taka langt frí frá fótboltanum. Ítalska knattspyprnusambandið leitaði til hans fyrr í sumar en Spánverjinn hafnaði starfinu þar sem hann taldi sig einfaldlega ekki hafa orkuna sem til þyrfti.
„Ég veit ekki einu sinni sjálfur hvað ég mun gera. Eins og mér líður í dag verður erfitt að snúa aftur,“ segir Guardiola í nýrri heimildarmynd Amazon.
„Ég þarf að endurnæra ýmislegt eftir það sem hefur gerst í mínu persónulega lífi. Ég þarf aðeins að finna sjálfan mig í öðrum hlutum. Ég þarf að setjast niður og aftengja mig um stund,“ Guardiola enn fremur, en hann og eiginkona hans skildu nýlega.
Txiki Begiristain, náinn vinur Guardiola og fyrrverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá City, hefur hvatt hann til að kynnast lífinu utan fótboltans.
„Ef hann umgengst bara fótboltafólk og fótboltinn er allt sem hann þekkir verður hann áfram í sama rússíbananum. Hann þarf tíma til að komast alveg út úr þessu,“ segir Begiristain.
Guardiola viðurkennir þó að sigurtilfinningin geti á endanum dregið hann aftur inn í þjálfun. Hann segir fótboltann ávanabindandi og bendir á að margir eldri stjórar eigi erfitt með að halda sig frá leiknum eftir að þeir hætta.