Manchester United og Arsenal hafa bæði mikinn áhuga á Kaua Elias, tvítugum framherja Shakhtar Donetsk.
Útsendarar beggja félaga fylgdust nýlega með Brasilíumanninum skora þrennu í 5-1 sigri Shakhtar gegn Kudrivka. Áhugi Arsenal er sagður hafa aukist í kjölfarið.
Shakhtar vill fá um 30 milljónir punda fyrir Elias og er ekki undir pressu að selja þar sem samningur hans gildir til 2029.
AC Milan og Porto fylgjast einnig með framherjanum en United og Arsenal eru talin líklegust til að geta greitt uppsett verð.
Elias kom til Shakhtar frá Fluminense í fyrra og hefur sjálfur líkt leikstíl sínum við brasilísku goðsögnina Ronaldo, meðal annars vegna hraða, tækni og markaskorunar.