433

Staðfesta skipti Ídu Marínar til Svíþjóðar

Mynd
Getty Images

FH hefur staðfest brottför Ídu Marínar Hermannsdóttur til sænska félagsins Hammarby.

 

Ída hefur verið frábær fyrir FH frá því hún kom frá Val fyrir tímabilið 2024. Á þeim tíma hefur hún til að mynda unnið sér inn sæti í íslenska landsliðinu.

Ída lék sinn síðasta leik fyrir FH í 0-3 tapi í toppslag Bestu deildarinnar gegn Breiðabliki um helgina. 

Hammarby er í öðru sæti sænsku efstu deildarinnar. Með liðinu leikur einnig önnur landsliðskona, Guðrún Arnardóttir.