433

Kynna Eið Smára til leiks

Mynd
Skjáskot: Dr. Football

Sýn Sport hefur greint frá því að Eiður Smári Guðjohnsen verði í sérfræðingateyminu sínu í kringum enska boltann, sem stöðin sýnir, í vetur.

Eiður Smári hefur getið sér gott orð sem sparkspekingur síðustu ár, síðast í umfjöllun RÚV um HM í sumar. 

Þá þekkir hann ensku úrvalsdeildina vel, enda vann hann hana tvisvar með Chelsea á leikmannaferlinum. 

Sýn Sport kynnti Eið Smára til leiks með þessu skemmtilega myndbandi: