433

Fer í ensku úrvalsdeildina eftir að fyrirhuguð skipti til Parísar urðu að engu

Mynd
Getty Images

Aston Villa er að ganga frá kaupum á japanska markverðinum Zion Suzuki frá Parma fyrir um 30 milljónir punda.

Hinn 23 ára Suzuki var talinn á leið til Evrópumeistara Paris Saint-Germain en ekkert varð af þeim skiptum.

Nú fer hann til Villa, þar sem Emi Martinez er fyrir aðalmarkvörður. Hann hefur hins vegar verið orðaður við brottför, til að mynda við Juventus, og þessi tíðindi ýta undir þá orðróma.

Suzuki er landsliðsmaður Japan og var með liðinu á heimsmeistaramótinu vestan hafs í sumar.