433

Kaupmáli Ronaldo og Georginu vekur athygli - Eignir aðskildar

Mynd

Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez skrifuðu undir kaupmála daginn áður en þau gengu í hjónaband við látlausa athöfn í Cascais í Portúgal.

Samkvæmt The Sun fór undirritunin fram hjá lögbókanda í Lissabon 10. ágúst, degi áður en parið gifti sig á glæsilegu heimili sínu í Quinta da Marinha.

Samkomulagið felur í sér að eignir þeirra haldast aðskildar. Komi til skilnaðar myndi hvort þeirra halda þeim eignum sem skráðar eru á viðkomandi, en sameiginlegar eignir yrðu áfram sameiginlegar.

Ronaldo er einn auðugasti íþróttamaður heims og á meðal annars fasteignir, lúxusbíla, einkaþotu og viðskiptaveldi sem teygir sig yfir hótel, líkamsrækt, tísku og afþreyingu.

Portúgalskir fjölmiðlar halda því jafnframt fram að Georgina myndi fá um 85 þúsund pund á mánuði ef hjónabandinu lyki.

Brúðkaupið sjálft var afar fámennlegt en aðeins fjögur vitni og börn þeirra voru viðstödd athöfnina.