433

Arsenal fylgist með Osimhen sem er heitur fyrir því að koma

Mynd
Getty Images

Arsenal hefur rætt við Galatasaray um möguleg kaup á Victor Osimhen, samkvæmt The Telegraph.

Nafn nígeríska framherjans kom upp í viðræðum félaganna vegna áhuga Galatasaray á Gabriel Martinelli og Ethan Nwaneri. Tyrkneska félagið hefur þegar boðið um 38 milljónir punda í Martinelli.

Arsenal hefur lengi haft augastað á Osimhen en Julian Alvarez hjá Atletico Madrid er sagður efstur á óskalista Mikel Arteta. Atletico vill þó yfir 100 milljónir punda fyrir Argentínumanninn og gæti Osimhen því reynst raunhæfari kostur.

Osimhen er sagður áhugasamur um að ganga til liðs við Englandsmeistarana en þyrfti líklega að taka á sig launalækkun. Hann er talinn fá rúmlega 300 þúsund pund á viku hjá Galatasaray.

Osimhen, sem er 27 ára, skoraði 22 mörk og lagði upp átta í 33 leikjum á síðustu leiktíð.