Youri Tielemans hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um Aston Villa eftir að hann gekk til liðs við Manchester United í sumar.
Tielemans, sem United keypti fyrir 35 milljónir punda, móðgaði stuðningsmenn Villa með ummælum sem hann lét hafa eftir sér í kjölfar skiptanna.
„Það eru félög fyrir ofan Villa og Manchester United er eitt þeirra,“ sagði kappinn sem hefur nú birt færslu á Instagram vegna málsins.
„Ég ætlaði aldrei að móðga neinn eða Aston Villa, félag sem ég ber gríðarlega virðingu fyrir og er þakklátur fyrir að hafa fengið að spila með,“ skrifaði Belginn.
„Ég verð þó að viðurkenna að ég gerði mistök með orðavali mínu. Ég mun gæta betur að mér í framtíðinni.“
Tielemans lék 134 leiki fyrir Aston Villa á þremur árum hjá félaginu. Hann samdi við United til ársins 2031.