433

Miðjumannakapall gæti farið af stað - Arsenal til í að selja miðjumann sinn en alls ekki ódýrt

Mynd
Getty Images

Arsenal er tilbúið að selja Martin Zubimendi í sumar og vill fá 77 milljónir punda fyrir miðjumanninn. Þetta er fullyrt í miðlunum Teamtalk.

Zubimendi kom til Arsenal fyrir aðeins ári síðan en staða hans hefur breyst eftir 75 milljóna punda kaup félagsins á Bruno Guimaraes. Brasilíumaðurinn er talinn líklegur til að mynda miðjuna með Declan Rice í flestum leikjum.

Chelsea hefur sýnt Zubimendi mikinn áhuga en hugsanleg kaup gætu ráðist af framtíð Enzo Fernandez. Manchester City íhugar að kaupa Argentínumanninn ef Rodri fer til Barcelona og gæti það opnað dyrnar fyrir skipti Zubimendi á Stamford Bridge.

Real Madrid hefur einnig áður sýnt Spánverjanum áhuga og gæti blandað sér í baráttuna.

Zubimendi lék 57 leiki fyrir Arsenal á síðustu leiktíð og er samningsbundinn félaginu til ársins 2030.