Sögusagnir eru á kreiki um að Liverpool hafi áhuga á Malo Gusto, hægri bakverði Chelsea.
Andoni Iraola vill styrkja hægri bakvarðarstöðuna eftir meiðslavandræði Jeremie Frimpong og Conor Bradley á síðustu leiktíð. Dominik Szoboszlai þurfti meðal annars að leysa stöðuna í nokkrum leikjum.
Chelsea hefur hingað til verðmetið Gusto á um 75 milljónir punda en félagið gæti verið tilbúið að lækka kröfurnar. Frakkinn er sagður hafa óskað eftir því að komast frá félaginu síðustu mánuði.
Gusto er 23 ára og hefur einnig vakið áhuga Manchester City, Tottenham og Bayern Munchen. Hann hefur leikið 134 leiki fyrir Chelsea frá því hann kom frá Lyon árið 2023.
Liverpool hefur aðeins fengið Victor Munoz og Ronald Araujo til liðs við sig í sumar en félagið vinnur einnig að kaupum á Bradley Barcola frá PSG.