433

Fólk furðu lostið yfir breyttu útliti stjörnu Liverpool - Ekki var allt sem sýndist

Mynd

Alexis Mac Allister er mættur aftur til æfinga hjá Liverpool eftir sumarfrí og vakti strax athygli á nýju útliti sínu.

Argentínumaðurinn fór í hárígræðslu eftir HM í sumar, en hann hafði áður gefið í skyn að hann ætlaði að láta verða af aðgerðinni eftir mótið.

Mynd

Mac Allister gerði sjálfur grín að breytingunni á Instagram og birti gervigreindarbreytta mynd þar sem hann var kominn með sítt hár, sleikt aftur eins og liðsfélagi hans, Dominik Szoboszlai.

„Ígræðslan virkaði fljótt. Ég er alveg eins og þú, Dominik Szoboszlai,“ skrifaði Mac Allister léttur.

Mynd